Um vefritið

Tíu þúsund tregawött er vefrit um ljóðlist sem stofnað var snemma árs 2006 með það að markmiði að kynda undir hugsun um ljóðlist og jóðlrænni hugsun. Vefritið hóf göngu sína á blogspot en fluttist fljótlega að tregawott.net - þar sem það birtist í bloggformi fram til haustsins 2008. Þá birtist fyrsta ‘tölublað’ ritsins, í kjölfar ákvörðunar ritstjórnar um breytta skipan mála - þar sem styttri fréttum, ábendingum og nýlegheitum um ljóðlist er bloggað en eilífðarmálum safnað í stök tölublöð ætluð undir ný frumsamin ljóð, ljóðaþýðingar, greinar, viðtöl o.s.frv. Skömmu eftir skipulagsbreytingar var síðan lögð niður og henni breytt til samræmis við nýjar áherslur.

Í hverju tölublaði Tíu þúsund tregawatta er ákveðið þema - jafnan eitt orð, opið og túlkanlegt - en auk þess mun fastur þáttur í útgáfu vera birting ritdóma um nýjar bækur og gamla fjársjóði, íslenskt og erlent. Tekið er á móti efni á netfangið: tiuthusundtregawott@gmail.com. Á sama netfang má senda tilkynningar um upplestra, nýjar bækur eða ábendingar um annað sem þið teljið eiga erindi í ljóðindastraum wattanna.

Í ritstjórn sitja Eiríkur Örn Norðdahl, Hildur Lilliendahl, Kári Páll Óskarsson og Jón Örn Loðmfjörð.

Leave a Reply

Refresh Page