Biscayne BLVD

biscayne-blvd

Apaflasa kynnir vorútgáfu sína 2009: Bókverkið: BISCAYNE BLVD eftir Ófeig Sigurðsson og Magnús Árnason.

Bókverkið BISCAYNE BLVD minnir á miðaldahandrit úr framtíðinni, en bókin er tileinkuð minningu Geirlaugs Magnússonar, skálds, sem dreymdi um að búa til vatnshelda buslu-Heimskringlu handa Snorra í lauginni. BISCAYNE BLVD er ljóðabálkur í sílikoni, saminn undir áhrifum af mangó-uppboðum í Miami-borg þar sem Ófeigur og Magnús settu upp eina af þeim myrku og blautu innsetningum sem Magnús er þekktur fyrir í myndlistinni.

Bókverkið á sér systraverk því Magnús Árnason hefur smíðað tíu veggmyndir úr sílíkoni sem kallast á við kápumyndir ljóðabókarinnar. Myndverkin eru til sölu í Útúrdúr, eins og líka BISCAYNE BLVD sem er bara gefin út í þrjátíu eintökum, enda er hvert eintak stórvirki.


Comments

Leave a Reply

Refresh Page