Tregawöttin vilja benda lesendum sínum á hina kjaftgapandi áhugaverðu ljóðabók Biscayne BLVD - buslubókina úr sílikoni - úr smiðju Magnúsar Árnasonar og Ófeigs Sigurðssonar. Smellið hér fyrir meira.
Biscayne BLVD

Apaflasa kynnir vorútgáfu sína 2009: Bókverkið: BISCAYNE BLVD eftir Ófeig Sigurðsson og Magnús Árnason.
Bókverkið BISCAYNE BLVD minnir á miðaldahandrit úr framtíðinni, en bókin er tileinkuð minningu Geirlaugs Magnússonar, skálds, sem dreymdi um að búa til vatnshelda buslu-Heimskringlu handa Snorra í lauginni. BISCAYNE BLVD er ljóðabálkur í sílikoni, saminn undir áhrifum af mangó-uppboðum í Miami-borg þar sem Ófeigur og Magnús settu upp eina af þeim myrku og blautu innsetningum sem Magnús er þekktur fyrir í myndlistinni.
Bókverkið á sér systraverk því Magnús Árnason hefur smíðað tíu veggmyndir úr sílíkoni sem kallast á við kápumyndir ljóðabókarinnar. Myndverkin eru til sölu í Útúrdúr, eins og líka BISCAYNE BLVD sem er bara gefin út í þrjátíu eintökum, enda er hvert eintak stórvirki.
Á morgun, föstudaginn 22. maí, verður haldið svonefnt Summer Poetry Jam á Kaffi Rót, Hafnarstræti, Reykjavík. Dagskráin er sem hér segir (með eyðum):
17:00-17:20 Jón Þór Sigurðsson
17:30-17:50 Daniel Norman Tumasson
18:00-18:20 ???
18:30-18:50 Nikulas Ári Hannigan
19:00-19:20 ???
19:30-19:50 Robin Vaughan-Williams
20:00-20:20 Marc Vincenz
20:30-20:50 Helgi Jónsson
21:00-21:20 Mark Andrew Zimmer
21:30-21:50 Magnús Ívar Markússon
22:05-22:50 Radio Active Meltdown (hljómsveit)
„Málþingið hefst kl. 14:00 á uppstigningardegi 21. maí og lýkur kl. 14:00 á föstudeginum 22. maí. Fluttir verða fyrirlestrar um lífsstarf Einars Braga út frá ýmsum sjónarhornum, sem og um önnur „atómskáld“. Lesið verður úr bókum Einars Braga, en einnig farið í heimsókn að Sléttaleiti.“
Tregawöttin vilja vekja athygli á málþingi um ljóðskáldið Einar Braga. Meira á vef Rithöfundasambandsins.
Á Íslandi er upphaf og endir ljóðlistarinnar Edda - en í Tyrklandi er það Eda. Bandaríska ljóðskáldið og etnópóesíu-fræðingurinn Jerome Rothenberg fjallar um hið tyrkneska Eda á blogginu sínu. „Eda is the play of ideas through the body of Turkish. Not only is it the poetics of Turkish poetry in 20th century, it is the extension of the language itself, the flowering of its inherent potentials.“
Hildur Lilliendahl ritstýrir næsta Tregawattahefti. Stefnt er að því að það komi út í júní og þemað er KONUR. Þemað er vel teygjanlegt og óskað er eftir sendingum í heftið á netfangið hlv@hi.is. Efni um konur eða eftir konur, um kvenleika, efni samsett af kvenleika, um femínisma eða af femínisma. Greinar, þýðingar og frumsamið efni, fíflagangur og allthvaðeina óskast í tölvupósti. Á sama stað er óskað eftir ritdómum af hvaða lengd og í hvaða stíl sem er - og þurfa ekki að tengjast þemanu.
Ron Silliman
International Exchange for Poetic Invention
The Harriet Blog
Charles Bernstein
Nada Gordon
a.rawlings
Nýhil
Eiríkur Örn Norðdahl
Kári Páll Óskarsson
Jón Örn Loðmfjörð
Kistan
Arngrímur Vídalín
Susanne Christensen
Hildur Lilliendahl
Sina Queyras
K. Silem Mohammad
Johannes Göransson
Nokturno.org
Druslubækur og doðrantar
Hugsandi
Kristján Bje Jónasson
Bókabloggið
Anton Helgi Jónsson
- An error has occurred; the feed is probably down. Try again later.

