Geðveikt Kaffihús Hugarafls verður haldið laugardaginn 2. maí í Hinu Húsinu. Tími: 11:00 – 17:00 (11-5) Manískar veitingar og kaffi til sölu. Undarlegar en skemmtilegar uppákomur og alls kyns geðveiki.
Geðgreiningar
Tónlistarviðburðir
Ljóðalestur
Handverksmarkaðurinn
Allir velkomnir í gleðina
Þau sem hafa áhuga á að lesa upp ljóð hafi samband við Hörð Gunnarsson í síma 8440908 eða á staðnum
Hinu Húsinu Gamla pósthúsið
Austurstræti Kjallara
Hver gæti gleymt hinu stórkostlega performans-prósaljóði Eiríks Arnar Norðdahl, Riddari niðurrifsins, þar sem flutt var pólitísk ádeila í eigin orðum himpigimpis? Formið slær sífellt rækilegar í gegn hjá þjóðinni - og nú er Ingvi Hrafn farinn að prósa sín eigin ljóð á sama hátt, fullkomlega kafsigldur af eigin sjálfsíróníu og brjálhysteríu, með sumarsmellinn Stóri bróðir kommúnismans. Smellið hér! Smellið hér!
Jæja. Þá hefur lýðræðið gersigrað. Íslendinga. Enn á ný. Tregawöttin hafa ekki mótað sér afstöðu til Evrópusambandsins, en þau mæla með Óðinum til gleðinnar, eins og hann er fluttur af furðufuglinum Bikari (hann hefur þar raunar verið strípaður texta Schillers, og má spyrja sig hvort þetta lýsi pólitískri afstöðu Tregawattanna til þýskra rómantíkera - stuðningsyfirlýsing við Wolfgang, án Friedrichs?).
Í dag, á Degi bókarinnar, mun Rithöfundasamband Íslands standa fyrir dagskrá helgaðri gróandanum í íslenskum bókmenntum. Eftirtalin skáld munu koma fram: Arngrímur Vídalín, Bjarni Klemenz, Emil Hjörvar Petersen, Guðmundur Óskarsson, Kári Páll Óskarsson, Kristín Svava Tómasdóttir, Ófeigur Sigurðsson, Óttar Martin og Sigurlín Bjarney Gísladóttir. Benedikt Hjartarson flytur erindi um íslenskan nútímaskáldskap og hljómsveit Tómasar R. Einarssonar kemur fram. Dagskráin fer fram í Iðnó og hefst kl. 21. Hún er ókeypis og öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
Kommúnísk ljóðskáld og rithöfundar munu fara hamförum á kosningamiðstöð Vinstri-grænna í kvöld, síðasta vetrardag, undir yfirskriftinni (með hástöfum) ANDANS MÁL, UPPLESTUR OG ALMENN GLEÐI. Kosningamiðstöðin mun vera á Tryggvagötu 11 í Reykjavík, skáldin eru Bragi Ólafsson, Bryndís Björgvinsdóttir, Einar Már Guðmundsson, Guðrún Eva Mínervudóttir, Haukur Már Helgason, Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Thor Vilhjálmsson og Þorsteinn frá Hamri - auk þess sem frambjóðendur munu víst stíga á svið. Hamagangurinn hefst klukkan 21.30 og eru LÉTTAR VEITINGAR (með hástöfum í tilkynningu) í boði og ALLIR VELKOMIR (með hástöfum).
Pulitzer verðlaunin voru veitt í gær í ótal flokkum - þar á meðal ljóðlist, en þann bikar hlaut W.S. Merwin fyrir bókina The Shadow of Sirius. Merwin er auðvitað ekki til á íslensku og það er ekki ástæða til að búast við honum í bókabúðum, en einhverjir hugga sig kannski við að á Landsbókasafninu má finna einar þrjár bækur eftir manninn, en eitt eintak er til af hverri. Þetta er í annað sinn sem Merwin hlýtur Pulitzer, en þann fyrri fékk hann árið 1971 fyrir bókina The Carrier of Ladders. Hlaut Merwin þá nokkra heimsfrægð, og ekki minnkaði hún þegar hann lenti í ritdeilu við hinn þá þegar heimsfræga W.H. Auden vegna ákvörðunar Merwins um að gefa verðlaunaféð til hreyfingar sem aðstoðaði unga menn við að koma sér hjá herskyldu vegna Víet Nam stríðsins. Þá er Merwin mikilvirkur þýðandi og hefur meðal annars þýtt ástarsöngva Pablos Neruda, hið spænska miðaldakvæði El Cantar de Mio Cid og Purgatorio Dantes.
Viti nokkur hvort nokkur ljóð hafi birst eftir Merwin á íslensku, sem ekki finnast á Gegni, má sá eða sú hin sama vinsamlegast hafa samband.
Aðrir tilnefndir í ár voru Frank Bidart (en að minnsta kosti eitt ljóð má finna á íslensku eftir hann hér) fyrir bókina Watching the Spring Festival og Ruth Stone fyrir What Love Comes To: New & Selected Poems.
Frekari upplýsingar um önnur Pulitzer-verðlaun í ár er að finna hér.
Með nýjum höfundarréttarlögum í Svíþjóð, sem tóku gildi í boði Evrópuþingsins - svonefndum Ipred-lögum sem ætlað er að koma í veg fyrir ólöglegt niðurhal á höfundarréttarvörðu efni - hefur færst aukin harka í átök um eignarrétt á myndum, hljóði og texta sem bitnar æði hart á collage-listamönnum. Nú síðast stöðvaði Konstfack-skólinn verk eins nemanda síns, sem hafði endurklippt myndband með Paris Hilton og notað tónlist úr tölvuleik. Fjallað er um málið í Dagens Nyheter og Aftonbladet.
Í dag hefst vika bókarinnar. Tregawöttin vilja minna á að bókmenntir finnast víðar en í bókum, samtímis sem þau hvetja lesendur sína ákaft til að fjárfesta í ljóðabókum.
Síðastliðinn föstudag fór fram ljóðbardagi aldarinnar (hingað til) á Whitney-listasafninu í New York er mættust turnarnir tveir í vestrænni framúrstefnu - flarf-skáldin dónalegu og konsept-skáldin fínklæddu - til að gera út um það í eitt skipti fyrir öll hvor skólinn væri hinn eini rétti. Þau sem lásu voru Sharon Mesmer, Kim Rosenfeld, Darren Wershler-Henry, Christian Bök, K. Silem Mohammed, Nada Gordon, Kenneth Goldsmith og Gary Sullivan. Ljóðskáldið Chris Funkhouser var á staðnum og tók myndbönd þau sem Tregawöttunum er ánægja að geta boðið upp á. Smellið hér til að sjá hið sögulega uppgjör.
Flarf-skáld vs. Konsept-skáld
Flarf: Sharon Mesmer
Konsept: Kim Rosenfeld
Flarf: Gary Sullivan
Konsept: Kenny Goldsmith
Flarf: Nada Gordon
Konsept: Darren Wershler-Henry
Flarf: K. Silem Mohammed
Konsept: Christian Bök
Ron Silliman
International Exchange for Poetic Invention
The Harriet Blog
Charles Bernstein
Nada Gordon
a.rawlings
Nýhil
Eiríkur Örn Norðdahl
Kári Páll Óskarsson
Jón Örn Loðmfjörð
Kistan
Arngrímur Vídalín
Susanne Christensen
Hildur Lilliendahl
Sina Queyras
K. Silem Mohammad
Johannes Göransson
Nokturno.org
Druslubækur og doðrantar
Hugsandi
Kristján Bje Jónasson
Bókabloggið
Anton Helgi Jónsson
- An error has occurred; the feed is probably down. Try again later.

