Komandi helgi verður Litla ljóðahátíðin haldin á Akureyri í Populus Tremula. Þar munu meðal annarra koma fram Ingunn Snædal, Þórarinn Eldjárn, Gyrðir Elíasson, Eiríkur Örn Norðdahl, Magnús Sigurðsson, Þorsteinn frá Hamri og fleiri. Frekari upplýsingar fást hér.
Módernisminn í ljóðagerð er stundum talin eiga upphaf sitt í stofnun ímagistahreyfingarinnar í Bretlandi. Þann 25. mars síðastliðinn (þ.e.a.s. á miðvikudaginn í síðustu viku) voru liðin hundrað ár frá fæðingu ímagismans. Allt um málið í Guardian.
Njörður P. Njarðvík er umsjónarmaður ljóðaþáttarins Ársól á RÚV. „Þátturinn Ársól er á dagskrá á sunnudagsmorgnum klukkan 8:05 og verður helgaður ljóðlist og tónlist. Lesin verða ljóð, fjallað um þau lítillega og leikin tónlist af frekar alvarlegu tagi, en með blöndu af yfirveguðum djassi og öðru léttara, t.d. vísnasöng, sem oft tengist ljóðlist.“ Ef maður er ekki vaknaður klukkan 8.05 á sunnudagsmorgnum er bara að hlusta á herlegheitin á netinu hér.
Þá má líka benda á þátt Þórdísar Gísladóttur og Þorgerðar E. Sigurðardóttur um skáldkonuna Theodóru Thoroddsen - en hann má heyra hér.
Sænska ljóðskáldið UKON orti á dögunum Twitter-ljóð - 14 línur, ein á dag í tvær vikur, eftir að hafa lesið lokakaflann í ævisögu Georges Perec, A Life in Words, eftir David Bellos. Ljóðið hófst 16. mars og lauk í gær - meira hér.
Skopstælingar á þjóðararfinum hafa verið hæstmóðins frá upphafi kreppu - Í banka sérhvers manns er fall hans falið - Hann var eins og hver annar bankamaður - o.s.frv. Nýlegast ríður á vaðið Hilmar Magnússon með Davíðssálm: Á Valhallarhæðinni er verið að krossfesta mann … smellið hér.
Vestanvindar - bókmenntadagskrá verður haldin á Ísafirði á morgun laugardag. Þar verða tekin fyrir skáldsysturnar Herdís og Ólína Andrésdætur, Theodóra Thoroddsen og Þormóður Kolbrúnarskáld. Frekari upplýsingar hér.
Nýjasti þáttur Maurvarpsins mun fjalla um ljóð og nafngreind ljóðskáld á heldur harkalegan máta, að því Tregawöttin herma - fylgist með taugaveiklun og bræði hríslast um landann á meðan ástsælustu skáld þjóðarinnar eru troðin í svaðið. Meira hér.
Hver orti „[h]rollvekjandi ljóð um ástarinnar dökku hliðar“, og hvaða skáld „þráir heimaland sitt“? Hvar er ort um „vorið eina þegar ljóðmælandinn var sautján“, hvaða skáld hefur gaman af að „reyta til reiði“ og hver lýsir „botnlausri einsemd manns sem skynjar ekkert nema auðn í kringum sig“? Svör við þessum spurningum og fleirum til í boði námsgagnastofnunar hér.
Listamennirnir á bakvið sýninguna Opið - til eru hræ verða með uppákomukvöld næsta föstudag þar sem sjónum verður beint að ‘opnum míkrafón’ - í sínu víðasta samhengi. Hvers konar textaflutningur, allt frá ljóði, smásögu, skáldsögu til.. Langar þig að halda ræðu, flytja erindi, leiklesa, stofna til umræðu eða þegja? Lemja trommusett eða flytja ljóðgjörning ? Möguleikarnir eru opnir. Áhugasamir eru beðnir um að láta vita af sér á opidtileru@gmail.com.
Nicholas Hughes, sonur ljóðskáldanna Sylviu Plath og Ted Hughes, fetaði ekki í fótspor foreldra sinna og gerðist ljóðskáld - en þann 16. mars síðastliðinn framdi hann sjálfsmorð eftir langa baráttu við þunglyndi, líkt og móðir hans gerði á sínum tíma og frægt hefur orðið. Meira í TimesOnline.
Ron Silliman
International Exchange for Poetic Invention
The Harriet Blog
Charles Bernstein
Nada Gordon
a.rawlings
Nýhil
Eiríkur Örn Norðdahl
Kári Páll Óskarsson
Jón Örn Loðmfjörð
Kistan
Arngrímur Vídalín
Susanne Christensen
Hildur Lilliendahl
Sina Queyras
K. Silem Mohammad
Johannes Göransson
Nokturno.org
Druslubækur og doðrantar
Hugsandi
Kristján Bje Jónasson
Bókabloggið
Anton Helgi Jónsson
- An error has occurred; the feed is probably down. Try again later.

