LJÓÐAGANGAN Í KRISTNESSKÓGI Á LAUGARDAGINN Laugardaginn 12. september verður farin ellefta Ljóðagangan. Að þessu sinni verður far­ið um Krist­nes­skóg í Eyjafjarðarsveit undir leiðsögn Helga Þórssonar. Fjölbreytt ljóðadagskrá í tali og tónum; ketilkaffi og meðlæti að hætti skógarmanna. ATH.: Ekki verður boðið upp á rútuferð en þeir sem tök hafa á að bæta við sig farþegum eru góð­fúslega beðnir að mæta við Amtsbókasafnið kl. 13:30, sem og þeir sem þurfa far. Aðrir mæti við Kristnesspítala kl. 14:00.

Tregawöttin vilja benda lesendum sínum á bókina Af steypu, frá Nýhil, en hún fjallar (meðal annars) um efnisleika ljóða. Meira hér.

Ný Tregawött

Meðal efnis: Gleði, hamingja, rúst, ljóð á ljóðaljóð ofan á ljóðaljóðaljóð ofan! Þýðingar, skáld, myndir – ekkert hefur nokkru sinni verið jafn gott!

þessu sinni er blaðið líka prentað og ætti að finnast á víð og dreif um höfuðborgarsvæðið.

Haukur Már Helgason er ritstjóri.

Netútgáfan er pdf!

Hugsa sér!

Tregawöttin vilja byrja á því að biðjast velvirðingar á að hafa verið í örlitlu sumarfríi.

En síðan benda á þetta: Alþjóðleg ljóðahátíð Nýhil hefst á miðvikudag.

Andspyrna fjallar um þrjár nýlegar ljóðabækur: Usli: Kennslubók e. dr. Usla - Ég hata alla e. Bryndísi Björgvinsdóttur og Það sem mér finnst helst að heiminum eftir Ingólf Gíslason.

Eiríkur Örn Norðdahl fjallar um Hvíslur eftir Frosta Friðriksson.

Nýtt tölublað af Tregawöttum: Konur hafa í gegnum tíðina verið notaðar til að selja allt milli himins og jarðar, frá bílum til tannkrems til trygginga og sjálfsvarnarnámskeiða, og nú er röðin komin að ljóðlistinni. Í kvenþemariti Tregawattanna, sem ritstýrt var af Hildi Lilliendahl, er að finna ljóð um konur og eftir konur, ritgerðir um konur og ljóð kvenna, sjónvarpsþátt um konur, þýðingar á verkum kvenna og meira að segja myndir af konum. Smellið hér fyrir herlegheitin.

Út er komin ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð, Blóm í byssukjafta græðginnar. Í tilkynningu segir að í bókinni megi finna óræð myndljóð í knöppu formi, önnur opin og glaðleg, fáein hvassyrtari, en öll séu þau fáguð og beri jafnframt skýr einkenni höfundarins. Meira um bókina hér.

Bókmenntakvöld verður haldið á Populus Tremula, Akureyri, þann 26. júní næstkomandi.  Eigið efni lesa Jóna Hlíf, Gunnar M. G. og Þórgnýr Inguson en einnig koma fram Ingimar Björn Davíðsson og Michael Boudreau og fara með fornar rímur í bland við nútímakveðskap úr Vesturheimi. Dagskrá hefst kl. 10 en hús opnar 21:30. Þetta er jafnframt síðasti viðburðurinn í Populus fyrir sumarlokun.

Laugardaginn 20. júní verður ljóðadagskrá með rokkuðu ívafi í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Umsjónarmaður dagskrárinnar er skáldið og rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson en sérlegir gestir hans verða söngvaskáldin Kristján Pétur Sigurðsson og Þórarinn Hjartarson. Dagskráin hefst kl. 21:00 og er enginn aðgangseyrir og allir velkomnir. Frekari upplýsingar hér.

Ljóðahaust: Mikið verður um dýrðir í ljóðlistinni síðla sumars og í haust. Fyrst skal nefna að Bókmenntahátíð í Reykjavík 2009, sem haldin verður í september, verður í sambandi við kanadísku Griffin-ljóðlistarverðlaunin, en einn dagur í dagskrá hátíðarinnar verður tileinkaður ljóðalestri og umfjöllun um ljóðlist. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2000 og meðal fyrri verðlaunahafa er Íslandsvinurinn Christian Bök. Að þessu sinni eru sjö ljóðabækur tilnefndar til verðlaunanna í tveimur flokkum. Lista yfir tilnefningar ársins má sjá hér, en sigurvegararnir verða tilkynntir 2. júní. Þeir koma svo til Reykjavíkur í haust ásamt sigurvegurum fyrri ára, en safn með ljóðaþýðingum eftir þessi skáld er fyrirhuguð til útgáfu í tengslum við hátíðina í haust. Auk þess að veita verðlaun fyrir nýútgefnar ljóðabækur hafa frá 2006 verið veitt sérstök verðlaun fyrir æviframlag á sviði ljóðlistarinnar. Meðal þeirra sem hlotið hafa þau heiðursverðlaun er sænska skáldið Tomas Tranströmer, en allnokkur ljóð hafa birst eftir hann í íslenskum þýðingum, m.a. eftir Jóhann Hjálmarsson, Pjetur Hafstein Lárusson og Njörð P. Njarðvík.

Í ágúst verður svo haldin hin árlega Ljóðahátíð Nýhils. Tregawöttin hafa hlerað að á meðal erlendra þátttakenda í ár verði bandaríska skáldið Sharon Mesmer, hin danska Mette Moestrup, sænski sálgreinirinn Ulf Karl Olov Nilsson, finnlandssvíinn Cia Rinne og margir fleiri. Þá munu fleiri viðburðir á hátíðinni í ár og meðal annars boðið uppá ljóðabíósýningu.

Tregawöttin verða opinber fjölmiðlungur hátíðarinnar og mun ágústblaðið prentað á PAPPÍR (auk þess sem það birtist í stafrænni útgáfu hér á netinu).

Einnig er von á bókinni Af steypu fyrir ljóðahátíð, en hún inniheldur verk og greinar um efnislega (konkret) ljóðlist, í ritstjórn Eiríks Arnar Norðdahl og Kára Páls Óskarssonar.

Jón Kalman Stefánsson hefur þýtt tvö ljóð eftir Charles Simic og birtast þau á Bjartsvefnum.

Refresh Page