Kæru lesendur, nú munu tregawöttin leggjast í dvala á ný. En örvæntið
eigi! Þau munu skríða aftur endurnærð úr hýði sínu eftir tvo mánuði, það
er að segja í byrjun júní. Þá verður það í ritstjórn Hildar Lilliendahl,
en þemað í það sinn verður konur; efni um konur og eftir konur, um
femínisma og innblásið af femínisma, þýðingar jafnt sem frumsamið.

Tregawöttin vænta þess að konur jafnt sem karlar lúri ekki á kventengdu
efni sínu eins og ormar á gulli, heldur sendi það á Hildi sem tekur við á
netfanginu hlv@hi.is