Höfundar efnis

Arngrímur Vídalín Stefánsson er hafnfirskt ljóðskáld og bókavörður. Fyrsta ljóðabók hans, Endurómun upphafsins, kom út hjá Nykri árið 2006. Arngrímur er, ásamt Jóni Erni Loðmfjörð, umsjónarmaður bókmenntaþáttarins Garðskálinn. Von er á nýrri ljóðabók frá Arngrími innan tíðar.

Ásmundur Ásmundsson er myndlistarmaður. Fyrr á þessu ári sýndi hann Holu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Á síðasta ári gaf hann út sína fyrstu skáldsögu og von er heildarútgáfu á ræðum hans. Hann skrifar einnig greinar í Viðskiptablaðið.

Davíð Stefánsson er skáld og bókmenntafræðingur. Eftir hann liggja þrjár ljóðabækur en sú fjórða, Heimaslátrun, er væntanleg á árinu. Nýjasta verk hans er óformlega fræðibókin Tvískinna, sem kom út á síðasta ári undir merkjum Nykurs. Davíð er búsettur í Reykjavík.

Eiríkur Örn Norðdahl er íslenskur þýðandi, rithöfundur og ljóðskáld. Nýjustu verk hans eru ljóðabókin Ú á fasismann og Maíkonungurinn, úrval þýðinga á völdum ljóðum Allens Ginsberg. Eiríkur hlaut íslensku þýðingaverðlaunin 2008. Eiríkur er búsettur í Helsinki.

Emil Hjörvar Petersen er skáld og bókmenntafræðingur. Nýjasta bók hans er Refur, sem kom út hjá Nykri á síðasta ári.

Haukur Már Helgason er rithöfundur, heimspekingur og ljóðskáld. Frá honum er von á bæði nýrri ljóðabók og greinasafni á næstunni.

Hörður Gunnarsson er ljóðskáld. Nýjasta ljóðabók hans er Nemandi svefnsins, en áður hefur hann sent frá sér Herbergi (1994), Týndur á meðal orða (2003) og Með mér er regn (2005).

Jón Örn Loðmfjörð er stafrænuskáld og framkomulistamaður. Meðal helstu verka hans má nefna ljóðavélina Gogga, sem skrifar ljóð á íslensku, ensku og finnsku, og Dadda sem er klippiljóðavél.

Kathleen Jamie er skoskt ljóðskáld. Meðal fjölmargra viðurkenninga sem hún hefur hlotið á ferli sínum má nefna The Forward Poetry Prize árið 2004 fyrir ljóðabókina The Tree House, ásamt tilnefningu til Griffin-verðlaunanna fyrir ljóðasafnið Mr & Mrs Scotland are Dead árið 2003. Hún kennir skapandi skrif við University of St. Andrews.

Kári Páll Óskarsson er blók sem ritstýrir hlutum og þýðir. Hefur sent frá sér tvær ljóðabækur. Búsettur í Reykjavík.

Kristín Eiríksdóttir er myndlistarkona og rithöfundur. Hún hefur sent frá sér þrjár ljóðabækur, en síðust þeirra var Annarskonar sæla (Forlagið 2008). Kristín er nú búsett í Kanada.

Kristín Ómarsdóttir er rithöfundur og skáld. Síðast sendi hún frá sér ljóðabókina Sjáðu fegurð þína árið 2008, en sú bók hlaut Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.

Óttar Martin Norðfjörð er rithöfundur, heimspekingur og ljóðskáld. Meðal fjölbreytilegra verka hans má nefna skáldsögurnar Hnífur Abrahams og Sólkross.

Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir er rithöfundur, sagnfræðingur og ljóðskáld. Hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir störf sín, nú síðast ritlaun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins árið 2008. Nýjasta verk hennar er ljóðabókin Loftnet klóra himin.

Teemu Manninen er doktorsnemi í bókmenntafræði við háskólann í Helsinki og
hefur gefið út tvær bækur, nú síðast Lohikäärmen Poika, sem kom út hjá Tammi
árið 2007. Hann var ritstjóri finnska ljóðatímaritsins Tuli ja Savu
2006-2007. Auk þess að gefa út bækur og ljóð á finnsku birtir Teemu ljóð sín
á ensku (ýmist frumort eða þýdd) á slóðinni unrungun.blogspot.com.

Tim Wells er enskt „pönk“-ljóðskáld. Eftir hann liggur ljóðabókin Boys‘ Night out in the Afternoon, auk þess sem hann hefur um langa hríð ritstýrt ljóðlistartímaritinu Rising.