Myndir

 

Með augun þrútin kaffistorknum svita
köldum nið loftræstikerfis
tif í klukku á vegg einhversstaðar
daglegi skammturinn og
suðið sem lekur útum bílrúðuna

 

ég veit ég fæ áfall ef ég kemst að því
að ég er þar sem ég held
ég sé

                  ég skil ekki hvernig hlutirnir geta
                  haldist svona í þessum
                  hita

og öskrin þau
mega alveg hætta


 

 

 

við höfum ferðast
vítt og breitt
en endum alltaf hér á sama stað
og skyndilega er allt farið
sem áður var óskað eftir

alltaf
og endurtekið aftur

 

 

 


beinagrindurnar halda uppi kúbanska svínginu hér
en það er ekkert raunamæddara en brotinn moll
framliðins bigbands á Milesdavistrippi
hvað sem þeir sögðu

og hvað sem reynt verður koma andartökin aldrei aftur
meðan draumarnir flykkjast
fyrir hugskotssjónum í myndum
úr skilvindu drauma

þegar ekkert annað er eftir
en panta sér annað glas á barnum
og þegar leigubílaröðin virðist of löng
ríðum við inni á klósetti
bíðum af okkur storminn

komum aftur seinna

 

Arngrímur Vídalín