Um höfunda
a.rawlings er kanadískt ljóðskáld, ritstjóri og fjöllistamaður. Hún var tilnefnd til Gerard Lampert verðlaunanna fyrir fyrstu bók sína, Wide Slumber for Lepidopterists, sem fór á lista yfir 100 bestu bækur ársins 2006 hjá The Globe and Mail. a.rawlings verður gestur á ljóðahátíð Nýhils í ágúst nk.
Anne Dacier var uppi á 17. öld í Frakklandi og var frægur þýðandi úr latínu og grísku. Hún skrifaði langan formála að sínu stærsta verkefni, Illíonskviðu. Kafli úr þeim formála birtist hér.
Anne Waldman er bandarískt bítskáld og kennari (og stofnandi) í The Jack Kerouac School of Disembodied Poetics. Meðal helstu verka hennar er bókin Fast Speaking Woman, en titilljóð hennar er þýtt hér að hluta.
Arngrímur Vídalín Stefánsson er hafnfirskt ljóðskáld og bókavörður. Fyrsta ljóðabók hans, Endurómun upphafsins, kom út hjá Nykri árið 2006. Arngrímur er, ásamt Jóni Erni Loðmfjörð, umsjónarmaður bókmenntaþáttarins Garðskálinn. Von er á nýrri ljóðabók frá Arngrími innan tíðar.
Dr. Usli er m.Paed í uppeldis- og kennslufræði frá háskólanum í Sundsvall og einn þekktasti kennslubókahöfundur landsins. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á sjálfsmyndarstyrkingu, símenntun og listræna atferlisþjálfun.
Edith Södergran (1892-1923) var finnlandssænskt ljóðskáld og einn af fyrstu módernistum Skandinavíu.
Eiríkur Örn Norðdahl (f. 1978) er íslenskur þýðandi, rithöfundur og ljóðskáld. Von er á þriðju skáldsögu hans í haust en útgefnar ljóðabækur hans eru sex talsins. Eiríkur hlaut íslensku þýðingaverðlaunin 2008.
Elísabet Arnardóttir er bloggari, talmeinafræðingur og ljóðgutlari. Ljóð hennar hafa birst á netinu, í Tímariti Máls og menningar, í bókinni Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna og víðar.
Eva-Stina Byggmästar (f. 1967) er finnlandssænskt ljóðskáld. Meðal bóka hennar er Älvdrottningen, sem tilnefnd var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2006.
Eva Rún Snorradóttir er 27 ára, útskrifuð úr leiklist - fræðum og framkvæmd. Hún er meðlimur í sviðslistahópnum 16 Elskendur og vinnur að heimildamynd um hjónabönd, gagnkynhneigð og eðlileika.
Gertrude Stein (1874-1946) var bandarískur rithöfundur sem skrifaði flest sín verk í París í byrjun 20. aldarinnar. Stein mátti lengi vel þola skuggann af karlveldi módernismans, Joyce, Pound, Eliot og Hemingway, en hefur á síðustu árum hlotið verðskuldaða athygli, þá sérstaklega meðal sprokskálda vestan hafs og í Skandinavíu. Meðal frægustu verka hennar er Tender Buttons, The Making of Americans og The Autobiography of Alice B. Toklas, þar sem hún segir sögu sína í orðastað ástkonu sinnar, Alice.
Gunnar Már Gunnarsson er fæddur á Akureyri 1984, tveggja barna faðir með BA-próf í mannfræði. Hann gaf út ljóðabókina Skimað út hjá Populus Tremula (2007). Í haust er síðan væntanleg ljóðabókin Milli barna hjá Uppheimum. Einnig hafa birst ljóð eftir hann í bókmenntatímaritinu Stína.
Halldóra K. Thoroddsen er fædd í Reykjavík árið 1950. Hún hefur gefið út fimm bækur, þar af þrjár ljóðabækur.
H.D. (eða Hilda Doolittle) (1886 –1961) var bandarískt ljóðskáld og rithöfundur í hópi ímagista. Skáldskapur hennar hefur verið nefndur kvenmiðaður módernismi og hún vann iðulega með þemu úr grískri klassík.
Hildur Lilliendahl (f. 1981) er íslenskt ljóðskáld, femínisti og ritstjóri heftisins. Ljóð hennar hafa birst í dagblöðum, tímaritum, bókum og um allt internetið og á næstu dögum er von á hennar fyrsta útgefna verki frá Nýhil; Sjálf kvíslast ég.
Ida Börjel (f. 1975) er sænskt konseptskáld sem var gestur ljóðahátíðar Nýhils árið 2008. Meðal bóka hennar eru Konsumentköplagen – juris lyrik og Skåneradio.
Jón Örn Loðmfjörð (f. 1983) er stafrænuskáld og framkomulistamaður. Meðal helstu verka hans má nefna ljóðavélina Gogga, sem skrifar ljóð á íslensku, ensku og finnsku, og Dadda sem er klippiljóðavél. Hann er einnig umsjónarmaður bókmenntaþáttarins Garðskálinn, ásamt Arngrími Vídalín. Þess má geta að Jón er snyrtilegur, heiðarlegur, hávaxinn og einhleypur og býr hjá móður sinni.
Karen Healey (f. 1981) er nýsjálenskur rithöfundur, búsett í Ástralíu. Hún hefur margvíslegar háskólagráður en vinnur um þessar mundir í doktorsverkefni um ofurhetjuteiknimyndasögur. Fyrsta skáldsaga hennar, Guardian of the dead, kemur út á næsta ári. Ljóðið sem hér birtist skrifaði hún sem svar við tölvupósti frá ókunnugum manni sem óskaði eftir frekari upplýsingum um brjóstin á henni.
Kristín Jónsdóttir er rétt tæplega fertug kona, búsett í París þar sem hún rekur ferðaþjónustuna Parísardaman.com og er meistaranemi í þýðingafræðum við Háskóla Íslands.
Kristín Ómarsdóttir (f. 1962 í Reykjavík) ólst upp í Hafnarfirði. Fyrsta ljóðabókin, Í húsinu okkar er þoka, kom út árið 1987, þerna á gömlu veitingahúsi kom út 1993, fimm árum síðar Lokaðu augunum og hugsaðu um mig. Sérstakur dagur með ljóðum Kristínar og ljósmyndum Nönnu B. Büchert kom út árið 2000 og í Inn og útum gluggann birtust ljóð hennar með ljósmyndum eftir Anna Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttur. Jólaljóð og Sjáðu fegurð þína komu út árin 2006 og 2008.
Magnús Sigurðsson (f. 1984) er þýðandi og rithöfundur. Meðal verka hans er smásagnasafnið Hálmstráin (2008) og ljóðabókin Fiðrildi, mynta og spörfuglar Lesbíu (2008). Þýðingar hans á ljóðum Ezra Pounds birtust í Söngvunum frá Písa (2007).
Marianne Moore (1887-1972) var bandarískt ljóðskáld sem fellur í flokk módernista. Ljóð hennar, Poetry, sem hér birtist í þýðingu, telst til helstu ljóða Bandaríkjamanna á 20. öld. Það birtist í mörgum ólíkum útgáfum en sú sem hér er þýdd er úr A New Anthology of Modern Poetry, endurskoðaðri útgáfu frá 1946.
Mette Moestrup (f. 1969) er danskt ljóðskáld. Hún hlaut Montanas Litteraturpris fyrir bók sína Kingsize árið 2007. Hún verður gestur ljóðahátíðar Nýhils í ágúst.
Nada Gordon er bandarískt ljóðskáld sem tilheyrir The Flarf Collective. Meðal bóka hennar er Folly.
Natalie Zina Walschots (f. 1983) er kanadískt ljóðskáld. Fyrsta bók hennar, Thumbscrews, kom út árið 2007.
Ólafur Sindri Ólafsson er fæddur 1983 með Venus í tólfta húsi og hænist því sérstaklega að veiku og fátæku fólki. Hann þráir frið og einveru, og á gjarnan í leynilegum ástarsamböndum.
Sharon Mesmer er amerískt ljóðskáld sem tilheyrir The Flarf Collective. Meðal bóka hennar er Annoying Diabetic Bitch.
Sigrún Björnsdóttir (f. 1956) er ljóðskáld. Hún hefur gefið út tvær ljóðabækur: Næturfæðing (2002) og Blóðeyjar (2008). Einnig hafa birst eftir hana ljóð í tímaritum og safnritum.
Sindri Freyr Steinsson fæddist í örbirgð árið 1987 án framtíðarvonar með fortíð sem vill helst gleyma. Ein útgefin skáldsaga: Út um rassgatið 2004. Ein útgefin ljóðabók: Hor 2007 og meira á leiðinni. Okkjúpasjón: Ósjálfráður skrifari, heimspekinemi og ástarsjúklingur.
Una Björk Sigurðardóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2008. Hún er starfar sem myndlistarmaður og fæst við skriftir. Ljóð hennar birtust í safnritinu Gáttir/Gateways í tengslum við Alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils 2008, auk þess sem hún hefur gefið út 3 myndasögu-ljóðabækur um Ævintýri sjúklegu stelpunnar, 2007. Í listsköpun sinni fæst hún við fjölbreytt svið miðla; videó, innsetningu, skúlptúr, málverk, grafík, hljóð, photocollage, teikningu og allt í bland. Umfjöllunarefnin spanna einnig vítt svið, frá innri heim til hins ytri, frá súrrealisma til samfélagsrýni. Þær systur írónía og tragíkómedía eru sjaldan langt undan enda trúir Una á húmor í listum og guðdómlegan fíflagang í öldusjó tilverunnar.
Valerie Solanas var bandarískur femínisti, fædd árið 1936. Hún átti róstusamt líf og vann meðal annars fyrir sér með vændi, en ritstörfin voru ástríða hennar. Frægasta verk hennar er manifestóið Sori, (SCUM), sem hún skrifaði karlkyninu til höfuðs. Það kom út árið 1968, en það ár skaut hún einnig og særði listamanninn Andy Warhol, sem hafði týnt fyrir henni handriti að leikriti. Hún dvaldi síðan um tíma á geðsjúkrahúsi en lést í San Francisco árið 1988, 52 ára að aldri