Höfuðbending

sýni sanna hetjulund
og blæs upp mótbáru
við Maríusandinn
afstýri strandi

smala hvölum á land
svo skipin hætti að skrafa
og baktala mig
brýt af földum

breiði með höfuðbendingu
blásæng yfir kvik skerin 
hvíta lygi
við þrönga lendinguna

lífsvon  

því enn logar eldur
undir fjöllum
og einsemdin
verður ekki frá þeim tekin

Sigrún Björnsdóttir