Ég vissi aldrei að kynsvall gæti verið svona mikið streð

Fólki sem heldur kynsvöll kemur alltaf jafn mikið á óvart hversu mikið streð það er.
Mér finnst besta leiðin til að halda kynsvall vera einmitt að undirbúa sig ekki neitt.
Kynsvall er ekki tæknileg útfærsla heldur meira bara spurning um viðhorf,
eða tækifæri til að verða börnunum sínum úti um minjagrip:
AT&T kynsvall með Carrot Top, til dæmis,
inniheldur ógrynni af einfaldri visku sem er auðvelt að heimfæra
á öll svið mannlífsins.
Ég er svo ánægð þegar kynsvallið gengur vel því ég legg svo mikið á mig til að svo geti verið.
Ég vissi að ég vildi eitthvað töff nýtt samtalsdót,
en ég vissi líka að ég vildi ekki sama gamla taktinn.
Fólk þýtur alltof oft í óðagoti á klósettið –
þannig fór þá um róttæka kynfæratískuna.
Engu að síður er kristilegi symbólisminn sem við dáum svo mikið ævinlega til staðar.
Í kynsvallinu okkar fór moldvörpumanneskjan með Saddam niður til moldvörpuborgar,
sem er risavaxin rasspíka í einu af útverfunum.
Ég fékk alls konar vinnu við noir út úr þessu.
Ég fékk að kynsvallast með litlum apaketti í Mel Gibson bíómynd.

Sharon Mesmer

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl