Næsta hefti : Hátíðarblað!
Næsta hefti Tregawattanna verður hátíðarblað ljóðahátíðar. Ritstjórar verða Bryndís Björgvinsdóttir og Haukur Már Helgason. Auglýst verður eftir bókstöfum í blaðið þegar ritstjórum er orðið ljóst eftir hvaða lögmálum er best að skipa þeim niður. Eftirtalin hafa þegar verið útilokuð: þyngdarlögmálið, annað lögmál varmafræðinnar, lögmálið um annað hvort eða og siðalögmálið í hjörtum okkar.
Efni berist á harukimar@gmail.com eða bryndbj@hi.is