Reður minn
er skær og þríhyrningslaga
Líkamleg staðreynd og lögun
þrálátur trommutaktur
lýsingarorð halda sig uppað:
rök, snjöll, laufskrýdd, ofdekruð –
anagröm fyrir mitt sanna nafn
eins og blóm stærri en heimurinn:
megindrættir
svalaðrar þrár
Gusast út
Við gerum möguleg öll viðbrögðvið þörfum samtímans
Viðerumalltafaðbregðastvið þörfum
nútímans með viðeiganditjáningu
msemþróaðar eruúrnákvæmumhugtökum og alltaf að taka tilrauna
skref inn í komandi tíma. Við munum halda áfram
að ráka að verða ítarleikarar ómælanlegra
hæfileika. Upprunalega myndin.
Nada Gordon
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl