13
tileinkað Sylviu Plath
það næsta sem þú gerir er það síðasta sem þú gerir

Satt / ósatt 1
Anusinn er þriðja kynfærið, sem allir hafa.
Það er ósýnileg stytta af tómri búrku á Kóngsins Nýjatorgi.
Þ.e.a.s. hún er ekki alveg tóm: Í henni svífur tómur brjóstahaldari sem í ofanálag er ósýnilegur.
Konur sprauta tárum þegar þær fá það.
Það er orðsifjafræðilegt samhengi á milli orðsins love á dönsku
og love á ensku, sem notað er til réttlætingar á 24-ára reglunni.
Á næturna þræla eskímóaskúlptúrarnir á Kristjánshafnartorgi sér í gegnum tungumál nýlenduherranna.
Oehlenschlægersgade heitir það sem hún heitir vegna þess að kúnni einn er með gullhorn í síðu tælenskrar skækju.
Okkar á milli höfum við fengið nóg af okkur sjálfum.
Uppruni er samhengi sem breytist.
Þó að maður hafi aldrei séð snjó, getur maður ímyndað sér hann.
Díonýsus fann upp antabus.
Að vera bláeygður er ein birtingarmynd kynþáttahaturs.
Að missa sakleysið er ekki það sama og að missa stjórnina.
Mette Moestrup
Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl