Úr Útvarp Skánn

 

> Hæ    jú ég er með fáeinar
spurningar hér þú getur kannski
afgreitt þær smám saman við tækifæri
til dæmis óskalagið sem ég bað um
með Doris Day     Dead
Wood Stage úr myndinni
Hollywood Hollywood og
síðan hitt sem ég bað um
með því það klikkaði líka
Hawaii Tattoo með Waikiki
það var eitthvað vandamál með
smáskífuna sem þið gátuð ekki
fundið     hvað fleira     Ned
Miller Do What You Do Well
en ég myndi vilja byrja með að heyra
ef ég má þetta með Doris
Day   á sænsku heitir myndin
Västerns vilda dotter
Pyjamasleken það var önnur

 

> Hæ þannig er mál með vexti að ég
á við vandamál að stríða   ég get ekki
snúið mér neitt annað með þetta en
þú virðist öllum hnútum kunnugur

> Eh

> Jú

> Lát heyra

> Ég var skorinn upp á mjöðm
fyrir fimm árum síðan en það
hefur ekki jafnað sig   ég finn
fyrir gervimjöðminni þegar ég sit
á venjulegum eldhússtól og ég get
ekki stungið mér í venjulega sundlaug
og baðað mig því þá gengur beinið til
og það er enginn sem vill ræða þetta
við mig á sjúkrahúsinu

> Það fyrsta sem þú skalt gera
er að gefa skýrslu á heilsu-
gæslustöðinni

> Já  það tekur á taugarnar og
allt maður finnur fyrir því að
maður er á lífi en er þetta líf sem
maður vill lifa   vinstri mjöðmin
hún er öll barasta í méli þessi
mjöðm getur losnað í hvaða
vindátt sem er   ef ég á að segja
hvað mér finnst þá er ég ekki
alveg í góðum málum með þessar
mjaðmir

> Heilsugæslustöðin   bæklunarlæknir

> Þau eru búin að grannskoða
líkama minn   ég er ansi
sterkur   ekki feitur   en ég
stundaði glímu í mörg ár  var
mikil kempa   jújú   þannig að
með tilliti til líkamsgerðar minnar
var þetta spurning um hvort ég myndi
þola þrettán klukkustunda
krabbameinsmeðferð  það gekk en
daginn eftir datt ég á svona
járnstatíf og mölvaði sex
rifbein   það lagast nú
alveg   ef ég fæ bara aðstoð  en
síðan er það hitt að ég get ekki
skrifað   ég fæ strax krampa um
leið og þau láta mig taka
upp penna

> Þú getur fengið félagsmálafulltrúa til að
skrifa fyrir þig

> Þúsund þakkir fyrir mig

> Ekkert mál

> Þetta skiptir mig svo
miklu ég verð alveg

> Óskalag

> Hrm   afsakið   þetta þarna
með Violetta

Ida Börjel

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl