Frá Moskvu til Parísar: Sterkar konur

 

Sektarkennd var ekki að merkja í tónum hennar, söng,
né heldur í fasi

María Nikolajevna Travína var þokkafull

en það var ekki þokki Maríu Nikolajevnu sem kom í veg fyrir
að tilfinningarnar brytust út, á yfirborðinu

Nærvera hennar var þess eðlis að geta rúmað hráustu kenndir
og nærst á þeim

 

Ekki þarf margar hreyfingar til
svo einstaklingar nái saman                                               enn færri orð
                                           / og alls enga leynifundi

Lífrænt hömluleysið eitt
er ekki óþarft

 

Sonétskja, litli undirleikari, taktu því ekki illa

    elskaðu afbrýðisemi þína!

 

Gunnar Már Gunnarsson