Úr Álfadrottningunni

 

Og ég sagði sweethearts ég sagði rósir
ég sagði sweethearts og ég sagði rósirnar
það er svo bjart hér inni það hljóta að vera rósirnar –
ó, svo mikil birta og ég sagði indælt og
elskan augu þín eru rósir og ég sagði
munnur þinn er … rós ó, leyf mér kyssa hann aftur
og ég sagði þú ert stelpa og ég er rós
ég sagði þú ert rós og ég stelpa og
ég sagði stelpa stelpa maður fær aldrei
of mikið af rósum ekki satt elskan það sagði
ég eða hvað og síðan sagði ég æðislegt og
frábært og indælt ég sagði það er svo bjart
hér inni það hljóta að vera allar rósirnar – en
elskan komdu með fleiri rósir og síðan sagði ég
stelpa stelpa stelpa maður fær aldrei of mikið af
rósum og síðan sagði ég kossar

Eva-Stina Byggmästar

Þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl