Jane Austen bréf frá Breiðholtinu

Loksins skrifa ég þér bréf. Ég hef ekki haft tíma því ég hef verið að klára að skrifa önnur bréf sem setið hafa á hakanum. Í gær skrifaði ég frænku okkar bréf varðandi hátterni konunnar í stigaganginum við hliðina. Ég fæ því ekki lýst fullvel hér en hún ber sig þannig að maður vilji skrifa um það í bréfum við frænkur í öðrum sýslum. Í gær barst mér bréf frá vinstúlku minni. Ég var í úlpunni og mætti pabba þínum á bílastæðinu. Hann tilkynnti mér um komu bréfsins. Í fyrstu hugsaði ég að þetta hlyti að vera í fyrsta skipti sem ég hafði frétt af komu bréfs á bílastæðinu. Svona einskonar forskot. En svo mundi ég eftir öðru tilviki.

_____________________________

Þetta veggfóður vekur upp eitthvað verulega grimmt og sjúkt falið langt oní gömlum minningum hjá fólki. Áferðin á því minnti mig á sögu pólsku stelpunnar. Hún hafði keypt sér pizzu með systur sinni í pizzubúllunni á horninu. Þegar hún kom niður í lestarstöðina voru veggirnir allir á hreyfingu og buðu henni að koma inní sig. 

Eva Rún Snorradóttir