útlit

í næsta húsi
hjá Tristan Snæ og Ísold Mjöll
fraus saman vetur og sumar

en þrátt fyrir að þau væru ung og
einstaklega glæsileg hjón

vissi það ekki á gott

 

 

liebherr
þráðbeinn
eins og reglustrika
skerð þú veröld mína

gul strik yfir bláan himin
gul strik yfir lúið bárujárn
gul strik yfir mosa, hraun og klöpp

gandur þinn harður
óvæginn
þrengir sér ofan í þéttan svörð
nauðug
gefur jörðin eftir

og eftir nokkra mánuði
steypukrógar
með galtóman maga

en þá ert þú farinn
(eins og allir þínir líkar)
liebherr

Elísabet Arnardóttir