Sjálfsmorð eftir Louis Aragon

A á b d ð e é f
g h i í j k l
m n o ó p r
s t u ú v
x y ý
þ æ
ö

Louis Aragon

Kristian Guttesen þýddi.

Vandasamt að keyra bíl

Ljóðið fann Eiríkur Örn Norðdahl.

Óorð eftir Hauk Má Helgason

Óorð

Smellið á ’spila’.

Ljóðið er unnið úr andardrætti og orðum Sigfúsar Daðasonar. Haukur Már Helgason er meðal þeirra sem koma munu fram á ljóðahátíð Nýhils undir lok næsta mánaðar.

Ljóðahátíð Nýhils

Sex erlend skáld og tólf íslensk lesa í ljóðapartíum á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins og taka þátt í umræðum með Birnu Bjarnadóttur og Ármanni Jakobssyni í Norræna húsinu á Fjórðu alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils. Glæsilegt þýðingarit verður gefið út samhliða hátíðinni, sem fer fram 22.-24. ágúst næstkomandi.

Fjórða alþjóðlega Ljóðahátíð Nýhils verður haldin hátíðleg dagana 22.-24. ágúst í Norræna húsinu og á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Dagskrá hátíðarinnar er með eindæmum metnaðarfull, en sex erlend skáld koma sérstaklega til landsins í tilefni hennar. Þau munu lesa upp á ljóðapartíum og taka þátt í pallborðsumræðum með íslenskum kollegum sínum.

Ch 16 og Ch 17 e. Sindra Frey Steinsson

Ch 16

Flauelsormurinn er silkimjúkur að utan, fallegt flauelsskinnið sem hann dregur nafn sitt af er mjúkt viðkomu og hann er undrafagur ásýndum. Flauelsormurinn lokkar til sín skordýr sem þrá ekkert heitara en mökun á fengitímanum. Þetta slungna kvikindi læsir svo oddhvössum vígtönnum sínum djúpt í æxlunarfæri fórnarlambsins og sýgur allt sæðið burt. Í stað sæðisins spýtir flauelsormurinn banvænu eitri í sárin sem sýkir dýrin miskunarlaust. Í snýkjudýrinu 1. Agapanthus rientalis/umbellatus breiðist eitrið út í meltingarveginn og í örverur í meltingarveginum. Þegar Agapanthus ræðst svo á dýr þar á meðal Homo Sapiens dreifast þessar örverur um blóðrásina og valda ástandi eða heilkenni sem nefnt hefur verið Adonis röskun, en er oft ruglað saman við ofsóknarbrjálæði. Þekkt hliðarverkun ástandsins er svokölluð ormapíka.

Stefnur e. Bjarna Bernharð

Tíminn er ekki liðinn
fyrr en veraldarskeiðið
er á enda runnið.

Munu fyrri stefnur
úr mannlífsflórunni
vakna til lífsins
og upp hefja að nýju
lífsins ádrepu.

Garðskálinn - 2. þáttur annarrar seríu

Garðskálinn er risinn úr hýði sínu eftir langan – en fagurfræðilega nauðsynlegan – vetrardvala, en þeir Jón og Arngrímur láta engan bilbug á sér finna fremur en venjulega. Ef eitthvað er mæta þeir hálfu stórkostlegri til leiks í því augamiði að rífa sljóan almenning uppúr dróma sainnuleysis og heimsku (með fullri hógværð).

Garðskálinn er stoltur að kynna glænýja byltingakennda kenningu um endalok hinnar þrúgandi kúgunar landsins ungskálda, sem hingað til hafa ráðið allri bókmenntaumræðu með viðurstyggilega skrúðmæltu náðarvaldi sínu!

Þátturinn er næstum því í lit að þessu sinni, fyrir utan að litarásirnar á myndavélunum voru bilaðar og að settið á til að skipta litum alveg að óvörum, sem hefur slæm áhrif á ljósnæmi viðkvæmra vélanna. Arngrímur var að kaupa sér nýja skyrtu sem hann bara varð að sýna utan á sér. Jón var í sömu fötum og alltaf.

Öfug-ugga-ljóða-glíma

Fyrir allri skemmtan er góð ástæða, helst aldarafmæli!

Í tilefni af aldarafmæli Ólympíuþátttöku Íslendinga blæs skátahreyfingin Nýhil til ljóðveislu á Næsta bar klukkan 20:30 miðvikudagskvöldið 18. júní. Kvöldið er haldið sérstaklega til heiðurs glímukappanum Guðmundi Sigurjónssyni Hofdal, þátttakanda á Ólympíuleikunum í London 1908 og eina Íslendingnum sem dæmdur hefur verið fyrir sódómíu.

Ýmis ung og öfugsnúin skáld stíga á stokk og hylla lífsvilluna. Þau eru:
Kristín Eiríksdóttir,
Ingólfur Gíslason,
Kristín Svava Tómasdóttir,
Jón Örn Loðmfjörð,
Bergþóra Einarsdóttir,
Gísli Hvanndal
og Arngrímur Vídalín.

Að vera eða vera ekki Herbert

HerbertÉg hafði alltaf þá trú innst inni
að sá dagur myndi koma að
ég
myndi slá í gegn

og þú veist,
eins og segir í
góðri bók,
Agnes

trúin flytur fjöll
ef maður trúir því
þá skeður það

efastu aldrei?

þá hrynur allt
maður má ekki efast
maður verður að trúa því
alveg
fram í
rauðan

ertu kominn á toppinn,
Hebbi?

þetta er mjög viðkvæm spurning.
hvar er toppurinn?

Þetta ljóð Herbert Guðmundssonar og Agnesar Bragadóttur fann Ásgeir H Ingólfsson hérna.

2 ljóð eftir Odd Sigurjónsson

Pappír

Prentvél nauðhamrar sálarlaus blöð
með yrkisefni mínu.
Meðvitað hef ég blóðgað
pappírinn með orðum mínum
grafiðí trén ótal illvirki án
samþykktar hans

Þessi hamslausa iðja tryllir mig
og ég vil festa á sem flesta
pappíra öll mín illverk.

Munngælur

Það er ágætt að rifja upp ljóð við munngælur
þó best sé auðvitað að hafa við höndina
höfuð konunnar.
Að geta séð höfuð í klofinu á sér með öðru
pesperrtívi eftir að hafa sannfærst um að það
sé þungt sem dúnn og ekkert geti gerst.
Óttastu ekki en reiknaðu þó líkurnar fyrir því að hún biti
ekki fastar en klukkublóm sem kitli ferðalanga
um Ísland.

(Ekki hugsa upphátt þá fyrst bítur hún)

Oddur Sigurjónsson